Starfsemi Seguls skiptist í fjögur svið:
Rafverktakar
Segull er með fjölbreytta rafverktakastarfsemi, bæði nýlagnir og
breytingar á rafkerfum í verksmiðjum, byggingum og skipum. Auk almennra
raflagna annast starfsmenn Seguls uppsetningu á síma- og tölvulögnum,
bruna-, vakt- og viðvörunarkerfum. Viðgerðaþjónusta Seguls veitir
atvinnufyrirtækjum, bátum og skipum skjóta og faglega þjónustu.
Vönduð vinnubrögð og vanir fagmenn tryggja góðan árangur.